Sagan á bak við KjarnaFit
Ég vinn vaktavinnu. Tólf tíma dagvaktir og næturvaktir sem skiptast á í hring, svo engar tvær vikur eru eins. Í mörg ár reyndi ég að halda mér í formi og lenti alltaf á sama veggnum: öll æfingaplön og matarplön sem ég fann gerðu ráð fyrir að ég ynni frá níu til fimm.
„Æfðu mánudag, miðvikudag og föstudag.“ En hvað ef ég er á næturvakt á mánudegi og sef fram yfir hádegi á þriðjudegi? Planið fór alltaf út um þúfur á fyrstu vikunni, og þá var auðvelt að gefast upp.
Of dýrt að fá einkaþjálfara
Einkaþjálfari leysir þetta. Hann setur upp plan sem passar þér, segir þér hvað þú átt að borða og heldur þér við efnið. En einkaþjálfun kostar oft tugi þúsunda á mánuði, og það er ekki raunhæft fyrir flesta til lengri tíma.
Ég fór að hugsa: af hverju er ekki til íslenskt app sem gerir það mikilvægasta sem einkaþjálfari gerir, fyrir brot af verðinu?
Svo ég bjó það til
KjarnaFit byrjaði sem lítið verkefni fyrir sjálfan mig. Ég vildi geta sett inn vaktirnar mínar og fengið æfingarnar raðaðar á réttu dagana, aldrei á vaktina sjálfa og aldrei í svefninn eftir næturvakt.
Svo bættist maturinn við. Ég vildi vita nákvæmlega hvað ég ætti að borða til að ná markmiðinu, með skömmtum sem eru reiknaðir fyrir mína þyngd og hæð, ekki einhvern meðalmann. Og þegar ég vissi hvað ég ætlaði að borða alla vikuna var augljóst næsta skref að innkaupalistinn yrði til sjálfur.
Í dag er KjarnaFit:
- Æfingaplan fyrir þitt markmið, hvort sem það er að byggja vöðva, léttast eða komast í form.
- Matarplan með skömmtum sem eru reiknaðir fyrir þig, og meal prep svo þú þarft bara að elda tvisvar í viku.
- Innkaupalisti sem verður til sjálfur út frá máltíðum vikunnar.
- Dagatal sem raðar æfingunum í kringum vinnuna þína, líka vaktavinnu.
- Göngur og hlaup með GPS.
Íslenskt, á íslensku
Flest líkamsræktaröpp eru gerð fyrir Bandaríkin, með bandarískum mat, bandarískum mælieiningum og ensku. KjarnaFit er gert á Íslandi fyrir fólk á Íslandi, með mat sem fæst í íslenskum búðum. Appið er líka á ensku og pólsku, því margir sem búa og vinna hér tala þau mál.
Líka fyrir einkaþjálfara
KjarnaFit kemur ekki í stað góðs einkaþjálfara. Þess vegna geta þjálfarar notað appið með sínum kúnnum: þeir setja upp prógrömm og matarplön, kúnnarnir skrá æfingarnar og þjálfarinn sér hvernig gengur. Kúnnar þjálfara nota appið frítt.
Ef þú hefur spurningar, hugmyndir eða eitthvað virkar ekki eins og það á að gera, sendu mér línu á info@kjarnafit.is. Ég les allt sjálfur.
– Davíð
Prófaðu KjarnaFit frítt í 7 daga
Æfingaplan fyrir þitt markmið, matarplan með skömmtum sem eru reiknaðir fyrir þig og innkaupalisti sem verður til sjálfur. Allt á íslensku. Ekkert kort þarf fyrstu 7 dagana.
Sækja í App Store