Eyða aðgangi að KjarnaFit

Uppfært 11. nóvember 2026

Þú getur eytt aðganginum þínum og öllum gögnum hvenær sem er. Það er ekki hægt að afturkalla.

Í appinu

1. Opnaðu KjarnaFit og skráðu þig inn.

2. Farðu í Ég → Aðgangur → Eyða aðgangi.

3. Skrifaðu EYÐA til að staðfesta. Aðganginum er eytt strax.

Áskrift

Áskrift endar ekki sjálfkrafa þó aðganginum sé eytt, því App Store og Google Play sjá um greiðslurnar. Segðu henni upp í stillingum Apple ID (Áskriftir) eða í Google Play undir Greiðslur og áskriftir.

Með tölvupósti

Kemstu ekki inn í appið? Sendu póst á info@kjarnafit.is frá netfanginu sem þú skráðir þig með og biddu um eyðingu. Við eyðum aðganginum innan 30 daga og látum þig vita.

Hverju er eytt

Ekkert er geymt eftir eyðingu. Afrit hjá hýsingaraðila eyðast sjálfkrafa innan 30 daga.